This is the Trace Id: a7865a144315e1e9b9ff1844c79f1f21
Fara í aðalefni Azure Copilot Windows XBOX Notendaþjónusta Windows-forrit Outlook Microsoft Teams Kaupa XBOX XBOX og leikir PC-leikir Microsoft AI Microsoft Security Azure Dynamics 365 Microsoft 365 fyrir fyrirtæki Microsoft Power Platform Windows 365 Developer Center Fylgiskjöl Microsoft Learn Microsoft Tech Community Microsoft Marketplace Visual Studio Software companies Ókeypis niðurhal og öryggi View all

Microsoft® Office Language Interface Pack 2013 – íslenska

Microsoft Office Language Interface Pack 2013 - íslenska hefur að geyma þýtt notandaviðmót fyrir mörg Microsoft Office 2013-forrit.

Mikilvægt! Val á tungumáli hér að neðan mun breyta öllu innihaldi síðunnar á það tungumál.

  • Version:

    2013

    Date Published:

    10.10.2023

    File Name:

    languageinterfacepack-x86-is-is.exe

    languageinterfacepack-x64-is-is.exe

    File Size:

    13.9 MB

    13.9 MB

      Microsoft Office Language Interface Pack 2013 - íslenska hefur að geyma þýtt notandaviðmót fyrir eftirfarandi Microsoft Office 2013-forrit:

    • Microsoft Excel® 2013

    • Microsoft OneNote® 2013

    • Microsoft Outlook® 2013

    • Microsoft PowerPoint® 2013

    • Microsoft Word® 2013


    • Með því að nota Microsoft Office Language Interface Pack 2013 - íslenska, geta notendur unnið í studdum tungumálaútgáfum úr upphaflegri uppsetningu Office-forrita og séð skipanir og valkosti fyrir þessi forrit á íslensku.

      Við uppsetningu á Microsoft Office Language Interface Pack 2013 eru skrár sem gera notendum kleift að breyta tungumáli notandaviðmóts, afritaðar á viðtökudisk. Eftir uppsetningu eru eiginleikar og samsvarandi valkostir Microsoft Office Language Interface Pack 2013 - íslenska tiltækir úr forritum Office 2013 og Microsoft Office 2013 tungumálastillingarforritinu.
  • Studd stýrikerfi

    Windows 7, Windows 8

    Microsoft Windows 7 - 32 eða 64 bita OS
    Microsoft Windows 8 - 32 eða 64 bita OS
    Athugaðu: Vinsamlegast gakktu úr skugga um að nýju uppfærslupakkarnir fyrir stýrikerfið þitt séu uppsettir til að tryggja hámarksstuðning fyrir tungumál þitt.

    Hugbúnaður Allar útgáfur af Office 2013, í pakka eða ein og sér, sem innihalda Microsoft Excel, Microsoft OneNote, Microsoft Outlook, Microsoft PowerPoint eða Microsoft Word eða sem munu styðja Microsoft Office Language Interface Pack 2013 - íslenska. Athugaðu: Vinsamlegast gakktu úr skugga um að nýjustu Microsoft Office-uppfærslupakkarnir séu uppsettir fyrir þínar Microsoft Office-vörur. Það tryggir betra notandaumhverfi.

    Tölva og örgjörvi 1 GHz örgjörvi með SSE2 stuðningi eða meira; 2 GB RAM eða meira

    Diskpláss Til viðbótar við harða diskplássið sem notað er af uppsettum Office 2013-forritum,
    • 3 GB af tiltæku diskplássi.

    • Allar aðrar kerfiskröfur eru þær sömu og fyrir þau Office 2013-forrit sem þú ert að nota með Microsoft Office Language Interface Pack 2013 - íslenska.


    Windows-tungumálaviðmótspakki Mælt er með því að nýjustu tungumálaviðmótspakkarnir fyrir Windows 7 eða Windows 8 séu uppsettir svo að tungumálastuðningur fyrir stýrikerfi þitt og forrit sé sem bestur.

    Skjáupplausn og DPI-stillingar Margar leturgerðir hafa verið búnar til svo að lestur verði sem bestur í 1366 x 768 upplausn. Eigir þú í vandræðum með að lesa leturgerðina fyrir tungumál þitt, skaltu vinsamlegast uppfæra skjástillingar þínar í þessa upplausn eða hærri ef nauðsyn krefur. Vinsamlegast athugaðu: við mælum með því að þú notir Office 2013-forritin í sjálfgefinni DPI-stillingu Windows - 96 DPI. Sé stillingin 120 DPI notuð getur það valdið því að notandaumhverfi sé ekki sem skyldi í sumum Office-forritum þar sem stærð á samskiptagluggum Office eykst.

    Valkostir landa og tungumála Ennfremur er mælt með því að öllum Valkostir landa og tungumála í Stjórnborð eru stilltar á tungumál Microsoft Office Language Interface Pack 2013 - íslenska.

  • Uppsetning:
    1. Sæktu forritið LanguageInterfacePack.exe með því að smella á hnappinn Sækja (hér að ofan) og vista skrána á harða disknum.
    2. Tvísmelltu á forritsskrána LanguageInterfacePack.exe á harða disknum til að ræsa uppsetningarforritið.
    3. Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum til að ljúka uppsetningunni.
    4. Þegar uppsetningu er lokið er "readme" skráin fyrir Microsoft Office 2013 tungumálapakkann aðgengileg á C:\Program Files\Common Files\microsoft shared\OFFICE15\1039\LIPread.htm.
    5. Uppfærsla á Office 2010 með Office 2010-tungumálaviðmótspakkanum eða eldri útgáfu á Office 2013 með Office 2013-tungumálaviðmótspakkanum er ekki studd. ekki studd. Viljir þú uppfæra uppsetningu þína á Office 2010 í Office 2013 með Office 2013 tungumálaviðmótspakkanum skalt þú:
      • Fjarlægðu Office 2010-tungumálapakkann.
      • Keyrðu uppsetningu á Office 2013 og veldu uppfærsluvalkostinn.
      • Þegar uppsetningu á Office 2013 er lokið, skaltu setja upp og grunnstilla Office 2013-tungumálaviðmótspakkann.



    Office-varan þín virkjuð:
    Eigir þú í vandræðum með að lesa allan uppsetningarkóðann í svarglugganum "Leiðsagnarforrit virkjunar á Microsoft Office", eða uppsetningarkóðinn sést ekki allur rétt þegar Microsoft Office Language Interface Pack 2013 er notaður, skaltu vinsamlegast loka leiðsagnarforritinu og skipta yfir á ensku (Bandaríkin) vöruna til að virkja Microsoft Office-vöruna.

    Leiðbeiningar um notkun:
    Ef þú vilt breyta notandaviðmótinu í tungumál Microsoft Office Language Interface Pack 2013 – íslenska, skaltu fylgja þessum skrefum:

    1. Ræsa Microsoft Office 2013-tungumálakjörstillingar úr valmyndinni Byrja\Öll forrit\Microsoft Office\Microsoft Office Tools.
    2. Undir Velja tungumál fyrir skjá og hjálp, undir Tungumál viðmóts skaltu velja tungumálið og smelltu svo á hnappinn Velja sem sjálfgefið.
    3. Undir Velja tungumál ritunar, skaltu velja tungumálið og smelltu svo á hnappinn Velja sem sjálfgefið.
    4. Smelltu á hnappinn Í lagi.


    Tungumálastillingarnar sem þú valdir taka gildi næst þegar þú ræsir Office-forrit.
    Athugaðu: Ekki er hægt að breyta Hjálp í tungumál Microsoft Office Language Interface Pack 2013 – íslenska. Hjálp verður alltaf á tungumáli upphaflegu uppsetningarinnar.
    Stilltu alltaf hjálpina í fellilistanum á grunntungumálið.

    Uppsetningarskráin fjarlægð:
    • Lokaðu öllum Microsoft Office-forritum.
    • Tvísmelltu á táknið Forrit og aðgerðir Í Stjórnborði Stjórnborð.
    • Í valkostinum Fjarlægja eða breyta forriti skaltu smella á Microsoft Office Language Interface Pack 2013 – íslenska í rammanum Uppsett forrit og velja svo valkostinn Fjarlægja .
    • Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.